þriðjudagur, 12. júní 2007
Folöld og framkvæmdir
Það var heilmikið húllumhæ á Hamarsheiði um helgina. Ég, pabbi, Edda Guðrún og Hildur Vaka komum á föstudagskvöldið og Silli, Sveinn og Jóhann Gylfi komu úr Steinsholti til að hjálpa til við að reka hrossin úr túnunum. Á laugardeginum kom Silli að bera á túnin og ég aðstoðaði við það. Seinni partinn komu svo Valdi og Helga með barnabörnin af Nesbalanum og slegið var um hamborgaraveislu. Ég eltist við strokna hesta allt kvöldið á meðan liðið slakaði á í heita pottinum. Á sunnudaginn komu síðan fleiri úr tengdafjölskyldunni í grillað lambalæri og með því. Mamma og pabbi komu - mamma til að setja niður kartöflur og pabbi til að gera við girðingar sem höfðu bilað. Arnar, Ýr og Hnikarr Örn komu líka. Við fjölmenntum svo að skoða folöldin og almennt þóttu þau mikil krútt. Gígjusonurinn er þó mun glæsilegri en sá undan Brá.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli