föstudagur, 18. maí 2007

Framkvæmdir í vikunni

Við feðgarnir fórum ásamt Ingvari austur á miðvikudaginn til að sinna viðhaldi á girðingum. Veðráttan aftraði því að við treystum vegunum inn landið að vestanverðu og því var ákveðið að sinna ýmsum verkefnum heima við. Við tengdum rafmagnið frá rafstöðinni í gegnum vegginn og færðum hana af gólfinu þar sem hún hefur legið sl. mánuði. Eins festum við stöðina tryggilegar á vegginn. Síðan var farið á hestbak og útjörðin skoðuð lítið eitt. Það er svolítið í að hagar verði tilbúnir innan túna og því ekkert aðhafst í að skilja hrossahópinn sundur í þetta skiptið. Í dag fórum við síðan með rusl úr fjósinu niður í Árnes og ég lagaði túnveginn eins og hægt var. Hryggurinn í honum var orðinn farartálmi fyrir allt annað en traktorinn og brúin yfir gilið orðin frekar aum. Það er hins vegar ljóst að það þarf eitthvað efni í veginn eigi hann að verða fær á veturna og við reynum að bæta úr því í sumar.

Engin ummæli: