sunnudagur, 18. mars 2007

Hörku, djöfuls helgi!

Við skötuhjúin erum tiltölulega nýlent hérna heima eftir góða helgi á Hamarsheiðinni. Fórum austur á föstudagseftirmiðdag með mömmu og Andreas en pabbi hafði farið með Stúdent á fimmtudaginn. Það var frekar snjóþungt fyrir austan og það hélt áfram að snjóa eftir að við komum þangað. Það var þó enn fært upp heimreiðina þegar við mættum en heilmikill snjór í henni samt. Mamma eldaði ofan í liðið á meðan ég fór og setti skófluna á Landini-inn og mokaði aðeins. Síðan átum við fyrirtaks búlgarskar kjötbollur og síðan var bara slakað á eftir matinn.

Í gærmorgunn vöknuðum við síðan og drifum okkur í níræðisafmæli fjölskyldunnar á Brúnum því Guðni varð fertugur 3. janúar, Lilja verður fertug á morgun og Ágúst verður 10 ára í júní. Það var frábært hádegisverðarhlaðborð með öllu tilheyrandi og mikið fjölmenni og gaman. Veislan stóð víst langt fram eftir kvöldi en við drifum okkur í skyldustörfin, ég að moka meira því það snjóaði heilmikið aðfaranótt laugardagsins og á laugardagsmorgunn. Ég hreinsaði innkeyrsluna og heimreiðina. Síðan fórum við feðgarnir og gáfum.

Í gærkvöld komu svo Eiki, Guðný og Helga Kristín í mat á Hamarsheiðina. Ég grillaði bjórkjúkling og Edda sá um meðlætið. Heppnaðist ágætlega og við sátum eitthvað fram eftir kvöldi. Þá var veðrið orðið slæmt og útlit fyrir að færðin yrði þung svo þau drifu sig tiltölulega snemma niður á Minna-Hof. Það gekk allt saman eftir. Ég var hins vegar dreginn fram úr um miðnættið til að bjarga föstum ferðalöngum af holtinu fyrir framan Móa en þar hafði Guðbjörg í Hamarsholti fest bílinn í einum skaflinum. Við Sigvaldi fórum henni til bjargar og gekk það ágætlega.

Eftir ágætan nætursvefn vaknaði ég svo í morgunn við það að síminn hringdi. Pabbi var á hinum enda línunnar og bað um aðstoð því traktorinn var fastur hjá honum niðri á túnvegi. Ég fór því niðureftir en get sjálfum mér um kennt að hafa ekki verið búinn að kenna honum betur á hann. Það eins sem ég gerði var að setja hann í lágt drif og læsa drifinu og þá reif hann sig upp úr skaflinum. Síðan þurfti ég að moka okkur burt af heiðinni því heimreiðin var full af snjó og nokkrir góðir skaflar lokuðu leiðinni niður að vegamótum.

Engin ummæli: