mánudagur, 5. mars 2007
Heilmikið að gerast
Ég talaði við pabba í kvöld. Hann er búinn að vera fyrir austan alla helgina með píparanum. Hann er að sögn þess gamla búinn að standa sig gríðarlega vel. Það er búið að gera við báðar sturturnar og næstum öll blöndunartækin í húsinu. Hann er búinn að laga frárennslið frá pottinum. Hann er búinn að setja ofna í hesthúsið og hann er búinn að tengja brynningartækin í stíurnar. Maðurinn er greinilega hamhleypa til verka og ég skammast mín að segja frá því að ég man ekki hvað hann heitir en hann er góðvinur hans Inga. Þessi maður verður alltaf velkominn á Hamarsheiði II í mínum huga. Annars er ég alltaf að bíða eftir að þið sendið mér myndir til að setja inn á síðuna. Ég læt þig bara fá lykilorðið að þessu Nonni svo þú getir sett þetta inn sjálfur en Guðrún og Gilli og mamma og pabbi geta bara látið mig fá þetta á tölvutæku formi og ég hendi þessu inn. Ég ætla líka að athuga hvort ég get ekki fengið eitthvað af myndum hjá þeim sem voru með okkur í sumar og höfðu myndavél meðferðis.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli